Fjórar vikur sumarið 2024
Sumarið 2024 stendur mennta- og menningarmálaskrifstofa bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir sumarnámsstefnu um umhverfismál fyrir efnilegt ungt námsfólk á grunnháskólastigi á aldrinum 18-25 ára á fyrsta eða öðru ári í náminu. Námsstefnan stendur væntanlega í fjórar vikur sumarið 2024, en nákvæmar dagsetningar liggja ekki enn fyrir. Allur kostnaður er greiddur fyrir þátttakendur (ferðir, uppihald, bækur, tryggingar o.fl.). Námsstefnan verður gagnvirk og reynslumiðuð og mun samþætta hefðbundna kennslu við pallborðsumræður, vettvangsheimsóknir og sjálfboðavinnu.
Umsóknarfrestur fyrir sumarnámsstefnuna 2024 er liðinn.