Óháð, fagleg ráðgjöf
EducationUSA er samstarfsnet meira en 430 ráðgjafarmiðstöðva um allan heim sem reknar eru í samráði við bandaríska utanríkisráðuneytið. Ráðgjafarmiðstöð EducationUSA á Íslandi heyrir undir Fulbright-stofnunina. Ráðgjöf er veitt samkvæmt ströngum reglum, þar sem lögð er áhersla á alhliða og hlutlausar upplýsingar um námsmöguleika í Bandaríkjunum. Hér má kynna sér þjónustu okkar og fræðast um námsmöguleika í Bandaríkjunum.
Þau sem eru að íhuga nám í Bandaríkjunum er velkomið að koma við á skrifstofu okkar í ráðgjöf alla þriðjudaga frá 13:00-16:00.
Einnig er hægt að fá ráðgjöf í gegnum síma eða tölvupóst