Vilt þú efla samstarf Íslands og Bandaríkjanna í menntamálum?
Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felst í almennum skrifstofustörfum og gagnavinnslu, stjórnsýslu og samskiptum tengdum styrkjum, en jafnframt sinnir starfmaður upplýsingagjöf um nám í Bandaríkjunum og tekur þátt í kynningarstarfi og skipulagningu viðburða.
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði, bæði í rituðu og töluðu orði. Þekking á Bandaríkjunum og bandarísku menntakerfi er æskileg. Aðrar hæfniskröfur: tölvu- og tækniþekking, sveigjanleiki, þjónustulund og samskiptahæfni.
Starfið hentar einstaklingi sem vill læra og öðlast reynslu í alþjóðlegu umhverfi. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin og því mikilvægt að vera tilbúin(n) að sinna öllum verkum. Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á www.fulbright.is. Gert er ráð fyrir 75-80% starfshlutfalli.
Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf og ferilskrá á netfangið [email protected] merkt „starfsumsókn 2026“. Umsóknarbréf skal vera á ensku, en ferilskrá á íslensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars n.k.
