Opið fyrir umsóknir: Benjamin Franklin Transatlantic Felowship 2026
Umsóknarfrestur 9. febrúar 2026
Benjamin Franklin Transatlantic Fellowship er styrkur fyrir 16-18 ára námsmenn til að taka þátt í fjögurra vikna sumarskóla við Purdue University í West Lafayette, Indiana, 23. júní – 21 júlí 2026. Námskeiðinu er ætlað að efla tengslin bandarískra og evrópskra námsmanna og efla umræðu um lýðræðisleg vestræn gildi á milli Bandaríkjanna og Evrópu. Dagskrá samanstendur af umræðufundum, kynningum og margvíslegum vinnusmiðjum, auk þess sem þátttakendur heimsækja ýmsar stofnanir, taka þátt í samfélagsverkefnum og kynnast bandarískri menningu. Jafnframt er dvalið hluta af tímanum hjá bandarískri fjölskyldu. Innifalið í styrknum eru námsgjöld, ferðir og uppihald.
Sótt er um styrkinn hjá Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna og nálgast má nánari upplýsingar, gögn og umsóknareyðublöð hér.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.
Almenn skilyrði sem íslenskir umsækjendur þurfa að uppfylla:
- vera á aldrinum 16-18 ára þegar námskeiðið hefst (fædd milli júní 2008 og 23. júní 2010)
- vera góður námsmaður
- félagslega virkur með áhuga á samfélagsþjónustu og félagsstarfi
- mjög góð enskukunnátta og góður árangur í ensku í grunn- og framhaldsskóla
- leiðtogahæfni og áhugi á að fræðast um Bandaríkin
- áhugi á Atlantshafstengslum og samskiptum Íslands og Bandaríkjanna
- hafa íslenskan ríkisborgararétt
- umsækjendur mega ekki hafa bandarískt ríkisfang eða vera búsettir í Bandaríkjunum
- vera þroskaðir og ábyrgir einstaklingar sem skuldbinda sig til virkrar þátttöku í námskeiðinu
- umsækjendur sem aldrei eða sjaldan hafa komið til Bandaríkjanna njóta forgangs
Styrkurinn er tilkynntur með fyrirvara um fjármögnun.
Senda skal útfyllta umsókn og námsferilsyfirlit til Menntastofnunar Íslands og Bandaríkjanna á [email protected] eigi síðar en 9. febrúar 2026. Jafnframt skal umsækjandi tryggja að meðmælandi skili umsögn beint til stofnunarinnar eigi síðar en 9. febrúar.
Athugið að meðmæli verða að koma beint frá meðmælanda til stofnunarinnar. Ekki er tekið við meðmælum sem koma í gegnum umsækjanda.
