News

Fulbright-stofnunin kallar eftir umsóknum fræðimanna

Fulbright Iceland Valsson

Fulbright Iceland Valsson

Fulbright Arctic Initiative III

Markmið áætlunarinnar er að styrkja alþjóðlegt vísindasamstarf á sviði Norðurskautsmála og að auka gagnkvæman skilning á milli þjóða. Fulbright Arctic Initiative (FAI) býður upp á þverfaglegt samstarf þar sem mál er skoðuð með heildstæðum hætti og stuðlað er að hagnýtum rannsóknum sem nýtast við að leysa sameiginlegar áskoranir.

FAI hefur mikilvægu hlutverki að gegna í fræðasamfélaginu í þessum málaflokki og er kjörinn vettvangur til að auka fræðasamstarf Íslands og Bandaríkjanna á Norðurslóðum. Þriðja verkefnalota FAI hefst haustið 2020 og mun standa yfir í 18 mánuði eða til vors 2022. U.þ.b. 16 fræðimenn frá öllum ríkjunum átta sem eiga aðild að Norðurskautsráðinu verði valdir til þátttöku í verkefnalotunni.

Umsóknarfrestur fyrir íslenska fræðimenn hefur verið framlengdur og er til og með 31. ágúst 2020 (í stað 26. apríl). Ráðgert er að verkefnið hefjist snemma árs 2021.

 

FAI

Nánari upplýsingar má finna hér.

Fulbright Arctic Initiative III