News

Vilt þú efla samstarf Íslands og Bandaríkjanna í menntamálum?

Fulbright Iceland Valsson

Fulbright Iceland Valsson

Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felst almennum skrifstofustörfum, í stjórnsýslu og samskiptum tengdum Fulbright styrkjum, upplýsingagjöf og kynningarstarfi, og aðstoð við framkvæmdastjóra, skjalastjórnun og skipulagningu viðburða.

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi með góða skipulagshæfileika. Góð þekking á Bandaríkjunum og bandarísku menntakerfi er æskileg. Starfið krefst góðrar íslensku og ensku kunnáttu, ritfærni, þekkingar á helstu tölvuforritum og getu til að tileinka sér nýja tækni.  Aðrar hæfniskröfur: sveigjanleiki, þjónustulund og samskiptahæfni.

Við bjóðum áhugavert starf í alþjóðlegu umhverfi. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin – mæta þarf glaður hverri áskorun.

Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á www.fulbright.is.

Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf  og ferilskrá á netfangið [email protected] merkt „Starfsumsókn 2025“. Umsóknarbréf skal vera á ensku, en ferilskrá á íslensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur.

Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar n.k.