American-Scandinavian Foundation styrkir 2026-2027

Umsóknarfrestur er 14. október 2025
Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna annast nú stjórnsýslu fyrir American-Scandinavian Foundation Fellowship styrki til Íslendinga.
Fyrir skólaárið 2026-2027 verða veittir styrkir að upphæð USD 15.000 til framhaldsnáms (mastersnám eða doktorsnám) eða rannsókna í öllum námsgreinum við bandaríska háskóla. Bæði nemendur sem hafa þegar hafið nám og þeir sem ætla að hefja námið haustið 2026 geta sótt um ASF styrkinn. Ekki er veittur styrkur til þeirra sem sækjast eftir skiptinámi í Bandaríkjunum.
Umsókn skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi ASF.
Umsóknarfrestur um American-Scandinavian Foundation Fellowship fyrir skólaárið 2026-2027 er 14. október 2025.
Athygli er vakin á að ASF styrkirnir ekki Fulbright styrkir og því ekki háðir sömu skilyrðum. T.d. á tveggja ára reglan ekki við og sækja má um styrk fyrir nám og rannsóknir í læknisfræði og öðrum greinum sem fela í sér samskipti við sjúklinga.
Nánari upplýsingar má finna hér.