Framhaldsaðalfundur FFSÍ -12. mars
Boðað er til framhaldsaðalfundar Félags Fulbright styrkþega á Íslandi, þar sem á aðalfundi þann 16. janúar náðist ekki lágmarksfjöldi í stjórn félagsins og ekki barst framboð í kjör formanns.
Framhaldsaðalfunduri verður fimmtudaginn 12. mars 2026 kl. 16 hjá Fulbright stofuninni, Laugavegi 13 – 2. hæð. Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum rafrænt á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/86380814760?pwd=Lp3iALaXpAExi7kbawSAE4ybP1L3Sc.1
Áhugasamir eru hvattir til að gefa kost á sér í stjórn.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
- Setning fundar, kosning fundarstjóra og ritara
- Lagabreytingar: Breytingatillögur á 4. og 5. greinum laga FFSÍ verða lagðar fram (sjá fyrir neðan dagskrá)
- Aukakosning stjórnar
- Önnur mál
Eftirfarandi tillögur að breytingum á lögum FFSÍ verða lagðar fyrir fundinn:
Grein 4.5 er svohljóðandi:
Eftirfarandi mál ber að taka fyrir á aðalfundi, eftir því sem við getur átt:
- Kosningu fundarstjóra og ritara aðalfundar
- Skýrslu stjórnar fyrir síðastliðið ár
- Afgreiðslu ársreikninga
- Lagabreytingar
- Kosningu formanns og stjórnar skv. 5. gr.
- Kosningu tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins
- Önnur mál.
Lagt er til að grein 4.5 verði:
Eftirfarandi mál ber að taka fyrir á aðalfundi, eftir því sem við getur átt:
- Kosningu fundarstjóra og ritara aðalfundar
- Skýrslu stjórnar fyrir síðastliðið ár
- Afgreiðslu ársreikninga
- Lagabreytingar
- Kosningu stjórnar skv. 5. gr.
- Kosningu tveggja skoðunarmanna reikninga félagsins
- Önnur mál.
Grein 5.2 er svohljóðandi:
Aðalfundur kýs formann og 4 til 6 stjórnarmenn. Eftir kjör skiptir stjórnin með sér verkum sem hér segir: varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn til þrír meðstjórnendur.
Lagt er til að grein 5.2 verði:
Aðalfundur kýs 3 til 6 stjórnarmenn. Eftir kjör skiptir stjórnin með sér verkum sem hér segir: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnendur.
Grein 5.8 er svohljóðandi:
Framkvæmdastjóri Fulbright stofnunarinnar á Íslandi á sæti á stjórnarfundum og á þar umræðu- og tillögurétt nema stjórn ákveði annað. Stjórn getur heimilað öðrum að sitja fundi ef þurfa þykir.
Lagt er til að grein 5.8 verði:
Starfsmanni Fulbright stofnunarinnar á Íslandi á sæti á stjórnarfundum og á þar umræðu- og tillögurétt. Heimilt er að fela starfsmanni Fulbright að annast ýmsa stjórnsýslu fyrir hönd félagsins. Stjórn getur heimilað öðrum að sitja fundi ef þurfa þykir, t.d. fulltrúa sendiráðs Bandaríkjanna.
