News

Alþjóðlegt samstarf sem styrkir landsbyggðina

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Þegar við fáum hingað sérfræðinga á heimsmælikvarða verða til ný samtöl, nýjar rannsóknarhugmyndir og nýjar tengingar.

Fulbright og Háskólinn á Akureyri

Samstarf Háskólans á Akureyri og Fulbright-stofnunarinnar hefur um árabil verið mikilvægur hornsteinn alþjóðlegs samstarfs skólans. Það hefur ekki aðeins fært háskólanum framúrskarandi fræðafólk frá Bandaríkjunum heldur einnig opnað dyr fyrir okkar eigið starfsfólk og stúdenta inn í alþjóðlegt vísindasamfélag.

Á síðustu tíu árum hafa 20 bandarískir Fulbright-styrkþegar elft starfsemi Háskólans á Akureyri. Þeir hafa komið frá 18 mismunandi háskólum og stofnunum í Bandaríkjunum og starfað á fjölbreyttum fræðasviðum – allt frá lögfræði, alþjóðasamskiptum og lýðheilsu til tölvunarfræði, netöryggis, hjúkrunarfræði, sjávarútvegsfræði og hafrannsókna.

Fulbright-samstarfið hefur verið okkur ómetanlegt. Það hefur auðgað kennslu, styrkt rannsóknir og eflt alþjóðlega tengingu Háskólans á Akureyri á þann hátt sem hefur raunveruleg áhrif á starfsemi okkar og samfélagið í kringum okkur.

Kennsla, rannsóknir og ný sjónarhorn

Langflest af fræðafólkinu hefur sinnt kennslu við HA, sex hafa sameinað kennslu og rannsóknir og þrjú einbeitt sér alfarið að rannsóknum. Þau hafa komið í gegnum fjölbreytt styrkjaform Fulbright og má þar til dæmis sérstaklega nefna að fjórir netöryggissérfræðingar komu í gegnum Fulbright Cyber Security Specialist áætlunina. Þeir voru styrktir að fullu af Fulbright og unnu náið með lögreglufræðinni við HA. Þeir lögðu sitt af mörkum til uppbyggingar þekkingar á sviði netöryggis og styrktu tengsl við alþjóðlegt sérfræðinet á sviði sem skiptir íslenskt samfélag sífellt meira máli.

Þegar við fáum hingað sérfræðinga á heimsmælikvarða verða til ný samtöl, nýjar rannsóknarhugmyndir og nýjar tengingar. Þetta hefur styrkt kennslu og skapar stúdentum okkar tækifæri til að læra af fræðafólki sem er með ólíkar áherslur okkar starfsfólks.

Varanleg tengsl sem myndast ómetanleg

Dæmin sýna vel hversu víðtæk áhrif Fulbright-styrkþegar hafa. Árið 2019 kom Nathan Reigner, PhD, sem Fulbright Scholar og starfaði með Háskólanum á Akureyri og rannsóknasetrum tengdum náttúruvernd og ferðamálum. Þekking hans á stjórnun áfangastaða á borð við Yosemite og Grand Canyon færði íslensku samhengi dýrmæta alþjóðlega sýn og aðferðir til samþættrar vöktunar á ferðamennsku og náttúruvernd.

Árið 2022 kom svo meðal annarra, Christina Goethel, sérfræðingur í vistfræði sjávarbotndýra. Christina miðlaði reynslu sinni af alþjóðlegum rannsóknaleiðöngrum og rannsóknum á áhrifum loftslagsbreytinga á vistkerfi sjávar við Auðlindadeild HA.

Samstarfið er ekki einhliða. Tveir rannsakendur frá HA hafa tekið þátt í Fulbright Arctic Initiative IV – Rachael Lorna Johnstone og Sigrún Sigurðardóttir – og einn doktorsnemi, Karen Birna Þorvaldsdóttir, hlaut Visiting Student Researcher-styrk og varð síðar fyrst til að útskrifast með doktorsgráðu frá HA. Slík þátttaka styrkir alþjóðlega stöðu skólans og skapar ný tækifæri fyrir framtíðarstúdenta.

Mikilvægast er þó að tengslin enda ekki þegar dvöl eða verkefni lýkur. Nokkrir fyrrverandi styrkþegar eru enn í samstarfi við fræðafólk HA, taka þátt í sameiginlegum verkefnum, ráðgjöf eða umsóknum um rannsóknastyrki. Þannig verður Fulbright ekki einungis tímabundið verkefni heldur upphaf að varanlegu alþjóðlegu samstarfi.

Eftirsóknarvert samstarf – ekki síst á landsbyggðinni

Fyrir háskóla á landsbyggðinni skiptir miklu máli að vera hluti af alþjóðlegu fræðasamfélagi. Fulbright-samstarfið gerir okkur kleift að bjóða stúdentum okkar upp á alþjóðlega reynslu heima fyrir. Það styrkir stöðu Norðurlands sem þekkingarsamfélags og sýnir að framúrskarandi fræðastarf á sér stað um allt land.

Fulbright eru ein virtustu skipti á fræðafólki í heimi. Að vera valinn sem gestgjafi slíkra styrkþega er viðurkenning á gæðum starfseminnar við Háskólann á Akureyri.

Við lítum á Fulbright-samstarfið sem fjárfestingu í framtíðinni. Það styrkir faglegt umhverfi okkar, eykur alþjóðlega sýn og skapar tengsl sem endast. Það er einfaldlega ómetanlegt.

 

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri og Fulbright-styrkþegi 2022-2023

Nálgast má greinina í fullri lengd hér