Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi 2025
Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi (FFSÍ) verður haldinn miðvikudaginn 12. febrúar 2025 kl. 17:00 á skrifstofu Fulbright stofnunarinnar að Laugavegi 13, 2. hæð (gengið inn frá Smiðjustíg).
Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum rafrænt á Zoom.
Gert er ráð fyrir venjulegum aðalfundarstörfum. Frekari upplýsingar og dagskrá verða birt síðar.
Lagabreytingartillögur þurfa að hafa borist eigi síðar en föstudag 31. janúar 2025 á netfangið: [email protected]
Lög FFSÍ
Stjórn FFSÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn. Áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnarsetu.