Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega 2024
Aðalfundur FFSÍ - 29. febrúar kl. 17
Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi (FFSÍ) verður haldinn fimmtudaginn 29. febrúar 2024 kl. 17:00 á skrifstofu Fulbright stofnunarinnar að Laugavegi 13, 2 hæð (gengið inn frá Smiðjustíg). Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum rafrænt á Zoom.
Gert er ráð fyrir venjulegum aðalfundarstörfum. Frekari upplýsingar og dagskrá verða birt síðar.
Lagabreytingartillögur þurfa að hafa borist fyrir fimmtudaginn 15. febrúar 2024 á netfangið: [email protected]
Stjórn FFSÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn. Áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnarsetu.