News

Haystack-styrkur fyrir lista- og handverksfólk sumarið 2027

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Jón Helgi Hólmgeirsson á námskeiði við Haystack Mountain School of Craft sumarið 2026

Umsóknarfrestur 25. október 2026

Opið er fyrir umsóknir um styrk til  lista- og handverksfólks tilað taka þátt í námskeiðum við Haystack Mountain School of Crafts. American Scandinavian Foundation og Fulbright stofnunin bjóða upp á tvo styrki fyrir Íslendinga til að sækja námskeið af eigin vali við skólann sumarið 2027.

Haystack Mountain School of Crafts er í Maine-fylki Bandaríkjanna og býður upp á tveggja vikna námskeið þar sem m.a. unnið er með málma, leir, textíl, gler, grafík og við, en boðið er upp á mismunandi námskeið innan hvers sviðs sem hægt er að velja um á ólíkum tímum yfir sumarið. Námskeiðsframboð fyrir sumarið 2027 má sjá hér.

Styrkurinn er allt að upphæð um $3.500 og verður nýttur til að greiða upp í námskeiðskostnað, gistingu og fæði við Haystack. Þátttakendur standa sjálfir straum af ferðakostnaði.

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi American Scandinavian Foundation. Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2027 er 25. október 2026.

Nánari upplýsingar umsóknargögn og skilyrði má finna á upplýsingasíðu Fulbright um Haystack styrkina.

Viðtal

Reynsla styrkþega

Smelltu á hnappinn fyrir neðan til að heyra útvarpsviðtal við vöruhönnuðinn Jón Helga Hólmgeirsson sem segir frá reynslu sinni við Haystack Mountain School of Craft sumarið 2026.

Viðtal