Á hverju sumri býðst lista- og handverksfólki hvaðanæava að úr heiminum að taka þátt í námskeiðum við Haystack Mountain School of Crafts. American Scandinavian Foundation og Fulbright stofnunin bjóða upp á tvo styrki fyrir Íslendinga til að sækja námskeið af eigin vali við skólann sumarið 2027.
Haystack Mountain School of Crafts er í Maine-fylki Bandaríkjanna og býður upp á tveggja vikna námskeið þar sem m.a. unnið er með málma, leir, textíl, gler, grafík og við, en boðið er upp á mismunandi námskeið innan hvers sviðs sem hægt er að velja um á ólíkum tímum yfir sumarið. Námskeiðsframboð fyrir sumarið 2027 má sjá til hliðar undir hlekknum 2027 Summer Workshops, en fleiri námskeið gætu bæst við listann. Einnig má finna má upplýsingar um fyrri námskeið á heimasíðu skólans: www.haystack-mtn.org. Valdir styrkþegar munu velja námskeið sem best hentar þeirra áhugasviði þegar þar að kemur. Styrkurinn er allt að upphæð um $3.500 og verður nýttur til að greiða upp í námskeiðskostnað, gistingu og fæði við Haystack. Þátttakendur standa sjálfir straum af ferðakostnaði.
Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi American Scandinavian Foundation. Umsóknarfrestur fyrir sumarið 2027 er 25. október 2026.