Ert þú framtíðar Fulbright-styrkþegi?

Við höfum aðstoðað hátt í 1000 Íslendinga að ná markmiðum sínum og öðlast nýja færni og þekkingu. Styrkþegar okkar skapa tengsl til framtíðar á milli Íslands og Bandaríkjanna, styrkja vináttubönd landanna og efla samskiptin á öllum sviðum þjóðlífsins.

Styrkþegar okkar koma aftur heim reynslunni ríkari og nýta þekkingu sína og færni til góðs. Þeir verða hluti af öflugu samfélagi Fulbright-styrkþega um allan heim, eru þakklátir fyrir þau tækifæri sem Fulbright á Íslandi hefur veitt þeim og hjálpa öðrum, með einum eða öðrum hætti, að ná sínum markmiðum. Ef þú hefur metnað til að bætast í hóp styrkþega Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi hvetjum við þig til að sækja um.

Námsmannastyrkir

Styrkir til framhaldsnáms

Hér má fræðast frekar um styrki Fulbright stofnunarinnar til framhaldsnáms. Ýmsir möguleikar eru í boði fyrir námsmenn sem hafa metnað til að stunda nám í Bandaríkjunum.

Framhaldsnám
Námsmannastyrkir

Rannsóknardvöl doktorsnema

Fulbright veitir styrki til íslenskra doktorsnema sem vilja vinna hluta rannsóknarverkefnis síns við bandarískan háskóla.

Doktorsnám
Námsmannastyrkir

Styrkir til skipináms

Fulbright veitir styrki til íslenskra mesistaranema sem vilja fara í skiptinám við bandarískan háskóla í eitt skólaár.

Skiptinám
Fræðimannastyrkir

Styrkir til fræðimanna

Fulbright-stofnunin veitir íslenskum fræðimönnum rannsóknarstyrki til að stunda rannsóknir í Bandaríkjunum.

Fræðimenn
16–18 ára framhaldsskólanemar

Styrkir vegna sumarnámskeiða

Jafnframt veitir stofnunin styrki til yngri námsmanna á aldrinum 16 til 18 ára til að sækja sumarskóla þar sem tækifæri gefst til að kynnast háskólanámi í Bandaríkjunum. Þessir styrkir eru ekki Fulbright styrkir, en eru á vegum Fulbright stofnunarinnar á Íslandi.

Sumarnámskeið