News

Sumarnámsstefna 2023 – opið fyrir umsóknir!

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Við höfum opnað fyrir umsóknir fyrir sumarnámsstefnu 2023!

Umsóknarfrestur er 3.nóvember 2023

Sumarið 2023 stendur mennta- og menningarmálaskrifstofa bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir sumarnámsstefnu um umhverfismál fyrir efnilegt ungt námsfólk á grunnháskólastigi á fyrsta eða öðru námsári á aldrinum 18-25 ára. Námsstefnan stendur væntanlega í fjórar vikur sumarið 2023, en nákvæmar dagsetningar liggja ekki enn fyrir. Allur kostnaður er greiddur fyrir þátttakendur (ferðir, uppihald, bækur, tryggingar o.fl.). Námsstefnan verður gagnvirk og reynslumiðuð og mun samþætta hefðbundna kennslu við pallborðsumræður, vettvangsheimsóknir og sjálfboðavinnu.

Nánari upplýsingar um námsstefnuna, umsóknarferlið og eyðublöð er hægt að nálgast hér.