News

Laust starf hjá Fulbright stofnuninni

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum einstaklingi í krefjandi og fjölbreytt starf sem felst m.a. í upplýsingagjöf til námsmanna, kynningu á námi í Bandaríkjunum, stjórnsýslu og samskiptum tengdum Fulbright styrkjum og almennum skrifstofustörfum. Starfshlutfall er á bilinu 70-100%.

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi með góða skipulagshæfileika. Þekking á bandarísku menntakerfi er æskileg. Starfið krefst góðrar íslensku og ensku kunnáttu, bæði í ræðu og riti, þekkingar á helstu tölvuforritum og færni til að tileinka sér nýja tækni og vinna með ólíka gagnagrunna.  Reynsla af kynningarstarfi og skipulagningu viðburða er kostur. Aðrar hæfniskröfur: sveigjanleiki, þjónustulund og samskiptahæfni.

Við bjóðum áhugavert starf í alþjóðlegu umhverfi. Hér starfar lítið teymi þar sem framlag og frumkvæði hvers starfsmanns skiptir máli. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin – halda þarf utan um marga þræði og mæta glaður hverri áskorun. Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á https://fulbright.is/

Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf  og ferilskrá á netfangið [email protected] merktar „starfsumsókn 2022“. Umsóknarbréf skal vera á ensku, en ferilskrá á íslensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur.

Umsóknarfrestur er til og með 29. maí n.k.