Vilt þú efla samstarf Íslands og Bandaríkjanna í menntamálum?
Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felst almennum skrifstofustörfum, í stjórnsýslu og samskiptum tengdum Fulbright styrkjum, upplýsingagjöf og kynningarstarfi, og aðstoð við framkvæmdastjóra, skjalastjórnun og skipulagningu viðburða.
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi með góða skipulagshæfileika. Góð þekking á Bandaríkjunum og bandarísku menntakerfi er æskileg. Starfið krefst góðrar íslensku og ensku kunnáttu, ritfærni, þekkingar á helstu tölvuforritum og getu til að tileinka sér nýja tækni. Aðrar hæfniskröfur: sveigjanleiki, þjónustulund og samskiptahæfni.
Við bjóðum áhugavert starf í alþjóðlegu umhverfi. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin – mæta þarf glaður hverri áskorun.
Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á www.fulbright.is.
Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf og ferilskrá á netfangið [email protected] merkt „Starfsumsókn 2025“. Umsóknarbréf skal vera á ensku, en ferilskrá á íslensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur.
Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar n.k.