Aðalfundur FFSÍ 2023
Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi
Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi (FFSÍ) verður haldinn þriðjudaginn 21. febrúar 2023 kl. 17:00 á skrifstofu Fulbright stofnunarinnar að Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík – 2 hæð.
Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum rafrænt á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/84763215880
Fundurinn hefst tímanlega kl 17:00.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
- Setning fundar, kosning fundarstjóra og ritara
- Skýrsla stjórnar
- Skýrsla gjaldkera, afgreiðsla ársreikninga
- Kosning formanns
- Kosning annarra stjórnarmanna
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál
Stjórn FFSÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn.
Við hvetjum öll áhugasöm til að bjóða sig fram til stjórnarsetu.