Opnað fyrir umsóknir um Fulbright styrki 2027-28
Umsóknarfrestur 14. október 2026 - Nýr styrkur í boði
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Fulbright styrki til náms og rannsókna í Bandaríkjunum skólaárið 2027-2028.
Athygli er vakin á því að nú er í boði nýr styrkur til skiptináms á meistarastigi. Sjá nánar um Fulbright styrki til skiptináms hér.
Jafnframt eru í boði eru styrkir til framhaldsnáms (meistara- eða doktorsnám) og rannsóknardvalar doktorsnema, sem og rannsóknarstyrkir til fræðimanna.
Umsóknarfrestur er 14. október 2026.
Allar nánari upplýsingar um Fulbright styrki til Bandaríkjanna má finna hér.
Einnig hefur verið opnað fyrir umsóknir um ‘Request for Scholar’ styrki þar sem íslenskar stofnanir geta sótt um að fá til sín bandarískan fræðimann í eina önn. Frekari upplýsingar má finna hér.
