Opið fyrir umsóknir um Fulbright styrki
![](https://fulbright.is/wp-content/uploads/2024/04/Insta_ISL-Fulbright-styrkir-25-26-1.png)
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um Fulbright styrki til náms og rannsókna í Bandaríkjunum skólaárið 2025-2026.
Umsóknarfrestur er 14. október 2024.
Í boði eru styrkir til framhaldsnáms og rannsóknardvalar doktorsnema. Jafnframt eru í boði rannsóknarstyrkir til fræðimanna.
- Námsmenn á leið í framhaldsnám fá nánari upplýsingar hér: Styrkir til framhaldsnáms
- Íslenskir doktorsnemar á leið í rannsóknardvöl fá nánari upplýsingar hér: Styrkir til rannsóknardvalar doktorsnema
- Fræðimenn fá nánari upplýsingar hér: Fræðimenn
Við hvetjum alla sem hafa áhuga til að sækja um!