Kynningarfundir fyrir nám og Fulbright styrki til Bandaríkjanna
Fulbright stofnunin á Íslandi heldur rafræna kynningarfundi um nám og styrki til Bandaríkjana 8.-11. september
Kynningarfundur um nám í Bandaríkjunum – Þriðjudagur 8. september kl. 12:15
Á þessum kynningarfundi fá íslenskir námsmenn tækifæri ti þess að heyra frá nokkrum núverandi og nýlegum Fulbright styrkþegum og fengið praktísk ráð og upplýsingar um háskólalífið í Bandaríkjunum. Þetta er frábært tækifæri fyrir þá sem hafa hug á námi í Bandaríkjunum að heyra reynslusögur frá fyrstu hendi og spyrja spurninga um ferlið við að sækja um og hefja nám í Bandaríkjunum.
Smellið hér fyrir Zoom hlekk fyrir kynningarfundinn um nám í Bandaríkjunum
Miðvikudaginn 9. september kl 12:15 verður kynning á Fulbright rannsóknarstyrkjum fyrir doktorsnema (Visiting student researcher) við íslenska háskóla.
Smellið hér fyrir Zoom hlekk fyrir kynningu fyrir doktorsnema
Nánari upplýsingar um rannsóknarstyrki til doktorsnema
Fimmtudaginn 10. september kl 12:15 verður rafræn kynning um Fulbright styrki til framhaldsnáms (masters- eða doktorsnám) og fyrir skiptinám mastersnema til Bandaríkjanna.
Smellið hér fyrir Zoom hlekk fyrir kynningu um námsmannastyrki til Bandaríkjanna
Nánari upplýsingar um námsmannastyrki til framhaldsnáms
Nánari upplýsingar um styrki til skiptináms
Föstdaginn 11. september kl 12:15 verður kynning á Fulbright rannsóknarstyrkjum fyrir fræðimenn.
Smellið hér fyrir Zoom hlekk fyrir kynningu fyrir fræðimenn
Nánari upplýsingar um fræðimannastyrki
