Íslenskir Fulbright styrkþegar 2023-2024
Í ár hljóta níu Íslendingar Fulbright styrk til framhaldsnáms og rannsókna við bandaríska háskóla, auk þriggja sem hljóta styrk til sumarnámsskeiða í Bandaríkjunum. Móttaka íslenskum styrkþegum til heiðurs var haldin þann 6. júní í Iðnó.
Íslendingar sem hljóta styrk frá Fulbright stofnuninni í ár eru:
- Arnhildur Tómasdóttir, til mastersnáms í erfðaráðgjöf við Stanford háskóla
- Gríma Irmudóttir, til mastersnáms í heimildarmyndagerð við Northwestern háskóla
- Hrafnkell Guðjónsson, til mastersnáms í mannréttindalögfræði við Kaliforníuháskóla, Berkeley
- Ivana Nikolic, til mastersnáms í mannréttindalögfræði við Harvard háskóla
- Jónatan Hróbjartsson, til mastersnáms í viðskiptalögfræði við Duke háskóla
- Sigurbjörn Bernharð Edvardsson, til mastersnáms í alþjóðalögum við Harvard háskóla
- Emil Dagsson, til doktorsrannsókna í hagfræði við Brown háskóla
- Guðbjörg Ríkey Thoroddsen, til doktorsrannsókna í alþjóðasamskiptum við Harvard háskóla
- Sólveig Sanchez, til doktorsrannsókna í umhverfisfræði við Kaliforníuháskóla, Davis
- Eybjört Ísól Torfadóttir, til þátttöku á sumarnámskeiði við Wisconsin háskóla
- Þór Ástþórsson, til þátttöku á sumarnámskeiði við Wisconsin háskóla
- Embla Rún Halldórsdóttir, til þátttöku í sumarnámsstefnu á sviði umhverfismála við Shippensburg háskóla
Á meðfylgjandi mynd eru styrkþegar ásamt Carrin Patman, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, og Belindu Theriault, framkvæmdastjóra Fulbright stofnunarinnar á Íslandi