News

Fulbright Arctic Initiative – Kynningarfundur 9. janúar

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Þriðjudaginn 9. janúar kl 15:00 verður rafrænn kynningarfundur fyrir íslenska umsækjendur fjórðu verkefnalotu Fulbright Arctic Initiative. Skráning á kynninguna er hér.

Fulbright Arctic Initiative (FAI) IV mun hefjast haustið 2024 og hefur verið opnað fyrir umsóknir um þátttöku. Markmið áætlunarinnar er að styrkja alþjóðlegt vísindasamstarf á sviði Norðurskautsmála. Fulbright Arctic Initiative býður upp á þverfaglegt samstarf þar sem mál er skoðuð með heildstæðum hætti og stuðlað er að hagnýtum rannsóknum sem nýtast við að leysa sameiginlegar áskoranir. Um er að ræða 18 mánaða verkefni sem hefst haustið 2024 og lýkur vorið 2026. Fræðimenn frá öllum ríkjunum sem eiga aðild að Norðurskautsráðinu eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um FAI IV, þemu og umsóknarferlið, sem og skilyrði sem umsækjendur verða að uppfylla, má finna hér. Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér verkefnið og umsóknarferlið á heimasíðunni fyrir kynningarfundinn.

Fræðimenn, þeir sem stunda rannsóknir og fagfólk með sérfræðiþekkingu á einhverju megin sviði verkefnisins eru hvattir til að kynna sér þetta einstaka tækifæri á vegum Fulbright til alþjóðlegs samstarfs á sviði Norðurskautsmála. Umsóknarfrestur er 1. mars 2024.