News

American-Scandinavian Foundation styrkir 2027-2028

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Umsóknarfrestur er 14. október 2026

Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna annast stjórnsýslu fyrir American-Scandinavian Foundation Fellowship styrki til Íslendinga.
Fyrir skólaárið 2027-2028 verða veittir styrkir að upphæð USD 15.000 til framhaldsnáms (mastersnám eða doktorsnám) eða rannsókna í öllum námsgreinum við bandaríska háskóla. Bæði nemendur sem hafa þegar hafið nám og þeir sem ætla að hefja námið haustið 2027 geta sótt um ASF styrkinn. Ekki er veittur styrkur til þeirra sem sækjast eftir skiptinámi í Bandaríkjunum.

Umsókn skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi ASF.

Umsóknarfrestur um American-Scandinavian Foundation Fellowship fyrir skólaárið 2027-2028 er 14. október 2026.

Athygli er vakin á að ASF styrkirnir eru ekki Fulbright styrkir og því ekki háðir sömu skilyrðum. T.d. á tveggja ára reglan ekki við og sækja má um styrk fyrir nám og rannsóknir í læknisfræði og öðrum greinum sem fela í sér samskipti við sjúklinga.

Nánari upplýsingar um American-Scandinavian Foundation Fellowship styrki má finna her: https://fulbright.is/asf-fellowship/