News

Átta Íslendingar hljóta styrk til Bandaríkjanna 2026-2027

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Menntastofnun Íslands og Bandaríkjanna veitir á hverju ári fjölda styrkja til íslenskra og bandarískra náms- og fræðimanna og í ár hljóta átta Íslendingar styrk frá stofnuninni. Tveir námsmenn hljóta Fulbright-styrk til framhaldsnáms við bandaríska háskóla næsta vetur. Þrír fræðimenn hljóta styrki til rannsókna eða kennslu í Bandaríkjunum. Auk þess hljóta þrír menntaskólanemar styrk til að sækja sumarnámsskeið í Bandaríkjunum í sumar.

Móttaka íslenskum styrkþegum til heiðurs var haldin þann 20. maí í Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Íslendingar sem hljóta styrk frá Menntastofnunun Íslands og Bandaríkjanna í ár:

Fulbright-námsmannastyrkir:

Birgir Ólafur Helgason, mastersnáms í lögfræði við Harvard-háskóla
Kamilla Kjerúlf, til mastersnáms í lögfræði við Columbia-háskóla

Fulbright-fræðimannastyrkir:

Oddur Snorrason, til rannsókna í málfræði við Suður-Kaliforníuháskóla
Sólveig Hilmarsdóttir, til rannsókna í klassískum fræðum við Kaliforníuháskóla í Los Angeles
Elsa Björk Valsdóttir, til kennslu í læknisfræði við MGH Institute of Health Professions

Sumarnámskeið í Bandaríkjunum:

Hrafnhildur Sigurðardóttir, til þátttöku á Summer College Academy sumarnámskeiði við Johns Hopkins-háskóla
Magnús Ingi Árnason, til þátttöku á Summer College Academy sumarnámskeiði við Vanderbilt-háskóla
Ester Mía Árnadóttir, til þátttöku á Benjamin Franklin Transatlantic Fellowship sumarnámskeiði við Purdue-háskóla

 

—————————————————————

 

The Commission, in cooperation with the Ministry of Culture, Innovation and Higher Education, hosted a reception for Icelandic grantees on May 20th at the Ministry of Culture, Innovation and Higher Education. Grantees, their guests, the Commission Board and representatives of the U.S. Embassy came together to celebrate this impressive group. The ED introduced the grantees and gave them advice as they embark on their U.S. journey. She and Board member Kristinn Andersen handed out certificates, mementos and flowers to the grantees. You can read all about the grantees elsewhere in the newsletter, but here are some photos of the happy occasion.