Framlag Fulbright til netöryggis á Íslandi
Í nær sjö áratugi hefur Ísland tekið virkan þátt í Fulbright áætluninni, samstarfi við Bandaríkin um gagnkvæm skipti nemenda og fræðimanna til náms og dvalar í hvoru landi. Árið 2018 hóf Fulbright stofnunin að veita sérstaka styrki til bandarískra fræðimanna í netöryggi til að koma til Íslands og miðla af þekkingu sinni til íslenskra háskóla og stofnana. Frá þeim tíma hafa komið einn til tveir fræðimenn á ári, samtals 16 einstaklingar á tímabilinu. Hver heimsókn er 3 til 6 mánuðir og hafa fræðimennirnir ýmist haft aðsetur í Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík eða Háskólanum á Akureyri.
Flestir þessara fræðimanna eru á sviði tölvunarfræði með sérþekkingu á netöryggi, en einnig hafa komið verkfræðingar, lögfræðingur og stjórnmálafræðingur. Þeir koma frá mörgum af virtustu háskólum og rannsóknarstofnunum Bandaríkjanna, svo sem MIT, IBM, Houston háskóla, Clemson háskóla og fleiri. Á meðan á dvöl þeirra stendur hafa fræðimennirnir kennt námskeið í háskólunum, stundað rannsóknir með íslenskum fræðimönnum og flutt opinbera fyrirlestra um netöryggi. Þeir hafa líka fundað með miklum fjölda aðila á Íslandi, svo sem utanríkis- og dómsmálaráðuneytum, netöryggisráði, lögregluembættunum í Reykjavík og Akureyri ásamt mennta- og starfsþróunarsetri lögreglunnar. Einnig hafa þeir heimsótt mörg íslensk fyrirtæki á sviði netöryggis. Það er því óhætt að segja að þessi hópur Fulbright fræðimanna hefur haft veruleg og jákvæð áhrif á þróun netöryggismála á Íslandi á undanförum árum.
Háskóli Íslands hefur verið svo heppinn að hafa fengið 9 af þessum fræðimönnum í heimsókn til sín og þar af hafa sex þeirra komið til tölvunarfræðideildarinnar, tveir í rafmagns- og tölvuverkfræði og einn í stjórnmálafræði. Það hefur nánast verið einn Fulbright netöryggisfræðimaður með aðsetur í tölvunarfræðinni í HÍ á hverjum vetri síðan 2019. Þessar heimsóknir hafa verið gríðarleg lyftistöng fyrir deildina, því þessir gestir hafa yfirleitt kennt eitt námskeið um netöryggi og unnið að rannsóknum á því sviði með kennurum deildarinnar. Árið 2023 setti deildin á fót meistaranám með áherslu á netöryggi í samvinnu við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík og hafa Fulbright gestirnir haft töluverð áhrif á skipulag og framkvæmd þess náms.
Nú í haust verður haldin á vegum Háskóla Íslands alþjóðlega netöryggisráðstefnan ICDF2C 2026 sem fjallar sérstaklega um rannsóknir á tölvuglæpum. Auk starfsmanna Háskóla Íslands er einn af aðalskipuleggjendum hennar Raymond Choo frá háskólanum í San Antonio í Texas, sem var Fulbright gestur hjá HÍ á síðasta ári. Aðrir fyrrverandi Fulbright gestir á Íslandi munu einnig taka þátt í ráðstefnunni á marga vegu: með því að sitja í skipulagsnefnd, halda vinnustofur eða senda inn greinar. Margir þeirra sem hafa verið Fulbright fræðimenn á Íslandi á þessu sviði ætla að nota tækifærið sem ráðstefnan gefur til að heimsækja Ísland aftur og endurnýja kynnin við íslenska fræðimenn í netöryggi.
Þess má að lokum geta að komur þessara fræðimanna í netöryggi hafa verið íslensku háskólunum og íslenska ríkinu algerlega að kostnaðarlausu. Öll fjármögnun þessa verkefnis hefur komið frá bandarískum yfirvöldum án nokkurs kostnaðar fyrir íslenska skattgreiðendur. Reyndar má benda á það að Fulbright samstarfið hefur að miklu leyti verið fjármagnað frá Bandaríkjunum, en mikilvægt er að Ísland taki aukinn þátt í kostnaði enda til mikils að vinna fyrir íslenskt samfélag. Þetta netöryggisverkefni er gott dæmi um það hversu mikil áhrif Bandaríkin geta haft til góðs fyrir nágrannaþjóðir sínar og hvernig Fulbright samstarfið getur stutt við það.
Kristinn Andersen, formaður stjórnar Fulbright stofnunarinnar og prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði við Háskóla Íslands
Hjálmtýr Hafsteinsson, stjórnarmeðlimur Fulbright stofnunarinnar og dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands
Nálgast má greinina hér
