Opið fyrir umsóknir: Summer College Academy 2025
Umsóknarfrestur 25. febrúar 2025
Summer College Academy gefur námsmönnum á aldrinum 16-17 ára tækifæri til að kynnast bandarísku háskólaumhverfi og menningu og bæta enskukunnáttu sína. Námskeiðin veita góðan undirbúning fyrir þá sem hyggja á háskólanám í Bandaríkjunum síðar meir. Sumarið 2025 bjóða þrír bandarískir háskólar upp á staðnámskeið. Um er að ræða sumarnámskeið sem stendur yfir í u.þ.b. 2 vikur á tímabilinu júní til júlí, en lengd og tímasetning er mismunandi eftir því við hvaða skóla þátttakendur dvelja.
Fulbright stofnunin, með fjárveitingu frá sendiráði Bandaríkjanna, veitir íslenskum námsmönnum fullan styrk til þátttöku í Summer College Academy sumarið 2025. Ferðir og þátttökugjöld verða greidd fyrir valda þátttakendur, og eru uppihald og tryggingar inni í því. Styrkurinn er tilkynntur með fyrirvara um fjármögnun.
Sótt er um styrkinn hjá Fulbright stofnuninni og nálgast má nánari upplýsingar, gögn og umsóknareyðublöð hér.
Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2025.
Almenn skilyrði sem íslenskir umsækjendur þurfa að uppfylla:
- vera í framhaldsskólanámi eða á síðasta ári í grunnskóla
- vera á aldrinum 16-17 ára þegar námskeiðið fer fram
- vera góður námsmaður og félagslega virkur
- hafa lokið enskunámi í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og ef við á, stundað enskunám á framhaldsskólastigi
- hafa íslenskan ríkisborgararétt
- umsækjendur mega ekki hafa bandarískt ríkisfang eða vera búsettir í Bandaríkjunum
- vera þroskaðir og ábyrgir einstaklingar sem skuldbinda sig til virkrar þátttöku í námskeiðinu
Gert er ráð fyrir því að styrkþegarnir séu „góðir fulltrúar lands og þjóðar“ sem munu, á meðan á námsdvöl stendur, kynna eigin menningu á jákvæðan hátt í Bandaríkjunum. Þátttakendur skuldbinda sig til að taka þátt í öllu námskeiðinu og lúta reglum gestgjafans á meðan á dvölinni stendur. Fulbright stofnunin mun skipuleggja ferðir þátttakenda og er gert ráð fyrir að þeir fari beint á námskeiðið við komu til Bandaríkjanna og svo beint til Íslands að námskeiðinu loknu. Tekið verður á móti þátttakendum á flugvelli og verða umsjónarmenn ávallt til staðar í gegnum námskeiðið.
Á þessu stigi skulu umsækjendur kynna sér þá háskóla sem í boði eru og velja tvo sem þeim líst best á, en ekki skal sækja beint um háskóla á þessu stigi. Þegar þátttakendur hafa verið valdir mun Fulbright stofnunin aðstoða valda umsækjendur við gerð lokaumsóknar og lokaval á skóla (en sá skóli sem er að lokum valinn getur verið annar en valinn var í umsókn til Fulbright). Þess skal getið að námskeið, inntökuskilyrði og umsóknarferli eru mismunandi eftir skólum og þurfa umsækjendur að kynna sér þau vel áður en skólar eru valdir.
Senda skal útfyllta umsókn og námsferilsyfirlit til Fulbright stofnunarinnar á netfangið [email protected] eigi síðar en 25. febrúar 2025. Jafnframt skal umsækjandi tryggja að meðmælandi skili umsögn beint til Fulbright stofnunarinnar eigi síðar en 25. febrúar. Athugið að meðmæli verða að koma beint frá meðmælanda til Fulbright. Ekki er tekið við meðmælum sem koma í gegnum umsækjanda.