News

Aðalfundur FFSÍ – Dagskrá

Fulbright Iceland Valsson

Fulbright Iceland Valsson

Aðalfundur Félags Fulbright styrkþega á Íslandi (FFSÍ) verður haldinn miðvikudaginn 12. febrúar 2025 kl. 17:00.

Fundurinn verður haldinn á skrifstofu Fulbright stofnunarinnar að Laugavegi 13, 101 Reykjavík – 2 hæð (gengið inn frá Smiðjustíg).

Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum rafrænt á Zoom: https://us02web.zoom.us/j/84720633887?pwd=7PAa8jqOJREYu8RhaqgijK5ZhxDp69.1

Fundurinn hefst tímanlega kl 17:00.

Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:

  1. Setning fundar, kosning fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Skýrsla gjaldkera, afgreiðsla ársreikninga
  4. Kosning formanns
  5. Kosning annarra stjórnarmanna
  6. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  7. Önnur mál

Stjórn FFSÍ hvetur alla félagsmenn til að mæta á fundinn og þau sem eru áhugasöm til að bjóða sig fram til stjórnarsetu.