Fyrir skólaárið 2027-2028 verða veittir styrkir að upphæð USD 15.000 til framhaldsnáms eða rannsókna í öllum námsgreinum við bandaríska háskóla.

Þessir styrkir eru ekki Fulbright styrkir og ekki háðir sömu skilyrðum. T.d. á tveggja ára reglan ekki við, sækja má um styrk eftir að nám er hafið og sækja má um styrk fyrir nám og rannsóknir í læknisfræði og öðrum greinum sem fela í sér samskipti við sjúklinga.

Umsókn skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi ASF.

Umsóknarfrestur um ASF-Fulbright Commission Fellowship fyrir skólaárið 2027-2028 er 14. október 2026.

Sjá má upplýsingar um ASF Fellowship styrkina á heimasíðu ASF en einnig má senda fyrirspurnir á [email protected].

ASF-Fulbright Commission Fellowship

Rafrænt umsóknarkerfi

Til að hefja umsókn þarf notandi að skrá sig í fyrsta sinn með netfangi og búa til lykilorð. Hægt er að vista umsókn áður en skilað er og opna aftur með því að skrá sig aftur inn með sama netfangi.  Ekki er hægt að skila umsókn nema fyllt sé út í alla stjörnumerkta reiti.

Umsóknarfrestur um skólaárið 2027-2028 er 14. október 2026.

Rafræn umsókn

American-Scandinavian Foundation (ASF) and the Iceland-United States Educational Commission (Fulbright Commission) have joined forces on the American-Scandinavian Foundation-Fulbright Commission Fellowship program for Icelanders.

ASF-Fulbright Commission Fellowship grants of USD 15,000 will be awarded to Icelandic students for the 2027-2028 academic year to pursue a graduate degree or research project in any field at a U.S. university.

ATTN: One grant is reserved for a student in engineering, physical sciences and the professions.

Applications are submitted using the ASF grant application platform.

The deadline for Icelandic grantees applying for funding through ASF for the 2027-2028 is the 14th of October 2026. 

Please note that the ASF-Fulbright Commission grants are not part of the Fulbright grant program and applicants are not subject to restrictions that apply to Fulbright grants (such as the two-year home residency requirement and clinical studies).

Mikilvægar upplýsingar fyrir umsækjendur

Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms (mastersnám eða doktorsnám) eða rannsókna í öllum námsgreinum við bandaríska háskóla. Ekki er veittur styrkur til þeirra sem sækjast eftir skiptinámi í Bandaríkjunum. 

Umsækjendur skulu vera íslenskir ríkisborgarar og hafa lokið (eða ljúka næsta vor) námi til fyrstu gráðu á háskólastigi (B.A., B.Sc., B.Ed., eða sambærilegri gráðu). Umsækjandi þarf ekki að hafa staðfestingu á skólavist þegar sótt er um. Ath. að styrkurinn er einnig í boði fyrir þau sem þegar hafa þegar hafið framhaldsnám í Bandaríkjunum.

Með umsókn skal skila:

  • CV
  • Transcript – athugið að hér er átt við háskóla, ekki setja inn menntaskóla
  • Brief Research/Project Summary – max 200 orð
  • Project Statement
  • Relationship to current and/or future plans – max 500 stafabil
  •  2 Letters of Recommendation – Umsækjandi gefur upp nöfn og netföng hjá 2 mæðmælendum sem skila bréfunum rafrænt. Bréfin ættu að vera skrifuð af háskólakennurum sem hafa kennt eða leiðbeint umsækjanda eða stjórnandum sem hafa haft umsjón með vinnu umsækjanda á viðkomandi fræðasviði. Ekki má fá ættingja, maka eða persónulega vini til að skrifa meðmælabréf. Bréfin skulu vera á ensku og þeim skal skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfið áður en umsóknarfrestur rennur út. Það er á ábyrgð umsækjandans að sjá til þess að bréfunum sé skilað tímanlega. Bréfin mega alls ekki koma í gegnum umsækjandann og hann á ekki að fá afrit af bréfunum. 
  • Budget – yfirlit yfir áætlaðan kostnað (t.d. skólagjöld, ferðir, framfærslu o.fl.) og hvernig umsækjandi ætlar að standa straum af honum (t.d. stykrir, námslán, eigið fé)

 

Fyrirspurnir má senda á [email protected].

Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2027-2028 er 14. október 2026.