News

Vilt þú efla samstarf Íslands og Bandaríkjanna í menntamálum?

Fulbright Iceland

Fulbright Iceland

Fulbright stofnunin leitar að háskólamenntuðum einstaklingi í fjölbreytt starf sem felst m.a. í stjórnsýslu og samskiptum tengdum Fulbright styrkjum, almennum skrifstofustörfum og skjalastjórnun, skipulagningu viðburða, upplýsingagjöf til námsmanna og kynningu á námi í Bandaríkjunum.

Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi með góða skipulagshæfileika. Þekking á bandarísku menntakerfi er æskileg. Starfið krefst mjög góðrar íslensku- og enskukunnáttu, ritfærni, þekkingar á helstu tölvuforritum og getu til að tileinka sér nýja tækni.  Aðrar hæfniskröfur: sveigjanleiki, þjónustulund og samskiptahæfni.

Við bjóðum áhugavert starf í alþjóðlegu umhverfi. Hér starfar lítið teymi þar sem framlag og frumkvæði hvers starfsmanns skiptir máli. Verkefni eru fjölbreytt og árstíðabundin – halda þarf utan um marga þræði og mæta glaður hverri áskorun. Upplýsingar um Fulbright stofnunina má finna á www.fulbright.is.

Til að sækja um starfið skal senda umsóknarbréf  og ferilskrá á netfangið [email protected] merkt „starfsumsókn 2023“. Umsóknarbréf skal vera á íslensku, en ferilskrá á ensku. Vinsamlegast tilgreinið tvo meðmælendur.

Umsóknarfrestur er til og með 20. nóvember n.k.